Hoppa yfir valmynd
10. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 92/2024 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 92/2024

Föstudaginn 10. maí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. febrúar 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. febrúar 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 149.441 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 22. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 28. febrúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. mars 2024 þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði þegar verið afturkölluð þar sem kærandi hefði sent gögn með kæru sem hefðu ekki legið fyrir við töku hinnar kærðu ákvörðunar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. mars 2024, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupóstum 16. og 24. apríl 2024. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. febrúar 2024, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.  Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum