Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stafrænt Ísland hlýtur alþjóðleg verðlaun

Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að bæta stafræna opinbera þjónustu í gegnum Ísland.is, hlýtur verðlaun WSA (World Summit Awards) í ár. WSA verðlauna árlega verkefni sem stuðla að stafrænni nýsköpun í þágu samfélagslegra umbóta. Verðlaun eru veitt í átta flokkum og fær Stafrænt Ísland verðlaun í flokki sem snýr að opinberri stjórnsýslu og þátttöku borgara (e. Government & Citizen Engagement).

Verkefni frá 182 ríkjum komu til greina en að lokum voru valdir fimm vinningshafar í hverjum flokki. Fjölþjóðlegur hópur sérfræðinga víðsvegar að úr heiminum skipar dómnefnd verðlaunanna. Við afhendingu þeirra í Patagonia í Chile í apríl verður svo valinn einn sigurvegari í hverjum flokki – svonefndur Global winner.

WSA var stofnað fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna árið 2003 og hefur það markmið að bæta aðgengi allra að stafrænum heimi. WSA metur verkefni út frá áhrifum á nærsamfélagið og hvernig þau styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Stafrænt Ísland er verkefnastofa innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar starfa 11 manns en rúmlega 250 starfsmenn stofnana og samstarfsfyrirtækja miðla til Ísland.is samfélagsins. Stafrænt Ísland aðstoðar opinberar stofnanir við að bæta stafræna þjónustu við almenning með því að gera þjónustuna skýrari, einfaldari og hraðvirkari.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta