Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2019
Miðvikudaginn 15. maí 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.
Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir blómstrandi pottaplöntur í tollskárnúmeri (0602.9091) samtals 4.450 stk., á meðalverðinu 100 kr./stk. Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 72 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 119 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir aðrar pottaplöntur í tollskrárnúmeri (0602.9093) samtals 5.660 stk., á meðalverðinu 113 kr./stk. Hæsta boð var 129 kr./stk. en lægsta boð var 83 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 126 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir tryggðablóm í tollskrárnúmeri (0603.1400) samtals 13.500 stk., á meðalverðinu 41 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 35 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 45 kr./stk.
Fimm tilboð bárust í tollkvóta fyrir afskorin blóm, í tollskrárnúmeri (0603.1909) samtals 288.750 stk. á meðalverðinu 28 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2019
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.600 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
50 |
Húsasmiðjan Blómaval ehf |
Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2019
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
660 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
1.500 |
Grænn markaður ehf |
Tryggðablóm júlí - desember 2019
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.200 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
5.300 |
Samasem ehf |
(Annars) afskorin blóm júlí - desember 2019
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
4.375 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
50.000 |
Grænn markaður ehf |
64.375 |
Samasem ehf |