Afgreiðsla nauðungarvistana flyst til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 1. janúar 2016
Frá og með 1. janúar flyst afgreiðsla nauðungarvistana á grundvelli lögræðislaga til embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Vaktsími þar um helgar og aðra frídaga er 849-1744 en virka daga ber að hringja í símanúmer embættisins, 458-2000. Eyðublöð og frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vef sýslumanna, syslumenn.is .
Upplýsingar um frekari breytingar á lögræðislögum nr. 71/1997 sem öðlast gildi 1. janúar 2016 má sjá í frétt ráðuneytisins frá 17. desember 2016 .