Heilbrigðisráðherra skipar vistunarmatsnefndir
Heilbrigðisráðherra hefur skipað þriggja manna vistunarmatsnefnd í hverju heilbrigðisumdæmi til fimm ára í senn, sbr. reglugerð um vistunarmat nr. 1262/2007. Hlutverk vistunarmatsnefndanna er að meta þörf einstaklinga fyrir varanlega vistun í hjúkrunarrými, óháð aldri. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna og setur honum erindisbréf. Nefndirnar skulu skipaðar lækni með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunarfræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu og félagsráðgjafa með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða. Ráðherra skipar einnig þrjá varamenn sem uppfylla sömu menntunarskilyrði og aðalmenn og er heimilt að kalla þá tímabundið til starfa eftir því sem þörf krefur. Félagsráðgjafar vistunarmatsnefnda skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu félags- og tryggingamálaráðherra. Kostnaður af starfi nefndanna greiðist úr ríkissjóði. Vistunarmatsnefndirnar eru þannig skipaðar:
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 30. janúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 29. janúar 2013.
Pálmi Jónsson, læknir, formaður
Til vara: Guðlaug Þórsdóttir, læknir
Inga Valgerður Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Til vara: Ásdís Geirsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Unnur V. Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Eyrún Jónatansdóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vesturlands, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður
Til vara: Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Guðmundur Sigurðsson, læknir
Til vara: Ólafur Þór Gunnarsson, læknir
Hjördís Hjartardóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Sveinborg Kristjánsdóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vestfjarða, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Helgi Kr. Sigmundsson, læknir, formaður
Til vara: Jón B. G. Jónsson, læknir
Þuríður Ingimundardóttir, hjúkrunarfræðingur
Til vara: Hulda Karlsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Guðný Steingrímsdóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Margrét Geirsdóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis Norðurlands, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Arna Rún Óskarsdóttir, læknir, formaður
Til vara: Sigurður Halldórsson, læknir
Herdís Klausen, hjúkrunarfræðingur
Til vara: Ragnhildur Þorgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Gunnar Sandholt, félagsráðgjafi
Til vara: Anna Marit Nielsdóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis Austurlands, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Þórarinn Baldursson, læknir, formaður
Til vara: Ólafur Sveinbjörnsson, læknir
Svanbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Til vara: Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Sigrún Harðardóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður
Til vara: Jónína Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Þórir Kolbeinsson, læknir
Til vara: Sigurgeir Már Jensson, læknir
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Nanna Mjöll Atladóttir, félagsráðgjafi.
Vistunarmatsnefnd í heilbrigðisumdæmi Suðurnesja, sbr. reglugerð nr. 1262/2007
Skipuð 1. febrúar 2008 til næstu fimm ára, þ.e. 31. janúar 2013.
Bryndís Guðbrandsdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður
Til vara: Þórný M. Heiðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Sigurður Árnason, læknir
Til vara: Bragi Þór Stefánsson, læknir
Rannveig Einarsdóttir, félagsráðgjafi
Til vara: Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi.