Sendiherra Noregs heimsótti matvælaráðherra
Svandís matvælaráðherra Svavarsdóttir tók á móti Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs í vikunni.
Tilgangur fundarins var að fara yfir þau málefni þar sem Noregur og Ísland eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta og eiga í samstarfi, s.s. í sjávarútvegi, landbúnaði og fiskeldi. Einnig var rætt það góða samstarf sem hefur verið til staðar á milli landanna í heilbrigðismálum og þá sérstaklega í Covid faraldrinum.