Hoppa yfir valmynd
17. maí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Þjónustuvefur sýslumanna kominn í loftið

Nýr þjónustuvefur sýslumannsembætta hefur verið tekinn í gagnið þar sem notendur geta fengið svör við helstu spurningum er varða verkefni sýslumanna. Þessi nýjung er hluti af stafrænni vegferð í opinberri þjónustu sem ötullega hefur verið unnið að í starfsemi sýslumanna.

Þjónustuvefurinn eykur möguleika viðskiptavina á sjálfsafgreiðslu og sparar þar með sporin fyrir þá og eykur skilvirkni í starfseminni.

Á þjónustuvefnum verður boðið upp á fyrirspurnarform þar sem notendur geta sent inn fyrirspurnir. Erindin berast á viðeigandi stað eftir málefnum og umdæmum sýslumanna. Til að auka möguleika viðskiptavina á sjálfsafgreiðslu gefur fyrirspurnarformið yfirlit yfir það efni á vef sýslumanna sem gæti veitt svör við fyrirspurn viðskiptavinarins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta