Alþjóðadagur til að stöðva refsileysi fyrir afbrot gegn fjölmiðlafólki.
Í tilefni af alþjóðadegi til að stöðva refsileysi fyrir afbrot gegn fjölmiðlafólki, sem er í dag, gerðist Ísland aðili að yfirlýsingu átta líkt þenkjandi ríkja á fastaráðsfundi ÖSE 31. október. Noregur flutti yfirlýsinguna fyrir hönd ríkjanna. Fjölmiðlafrelsi er eitt af viðfangsefnum ÖSE sem starfrækir Skrifstofu sérstaks fulltrúa fyrir frelsi fjölmiðla (RFOM). Á fastaráðsfundum er reglulega vakin athygli á málefnum fjölmiðla í aðildarríkjunum.
Ræðuna má lesa hér.