Hoppa yfir valmynd
16. október 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 76/2018 Úrskurður 16. október 2018

Mál nr. 76/2018                    Eiginnafn:     Milli (kk.)

 

Hinn 16. október 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 76/2018 en erindið barst nefndinni 19. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Milli (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Milla, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Milli (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta