Mál nr. 66/2017 Úrskurður 24. nóvember 2017
Mál nr. 66/2017 Eiginnafn: Dóróþea
Hinn 24. nóvember 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2017 en erindið barst nefndinni 1. nóvember.
Eiginnafnið Dóróþea (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dóróþeu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Dóróþea (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.