Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Laugardalshöll
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum embættis sýslumannsins í Reykjavík færðist úr Skógarhlíð 6 yfir í Laugardalshöll frá og með mánudeginum 15. apríl.
Opið verður alla daga frá kl. 10:00–22:00 fram að kjördegi. Á kjördag verður opið frá kl. 10:00–17:00 fyrir þá kjósendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.
Símanúmer í Laugardalshöll: 860 3380 og 860 3381.
Neyðarsími kjörstjóra 860 3382.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum o.fl.
Tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum o.fl. á vegum sýslumannsins í Reykjavík vegna alþingiskosninga eru eftirfarandi:
- Hjúkrunarheimilið Sóltún - mánudaginn 15. apríl, kl. 13-14:30
- Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 16. apríl, kl. 13-15
- Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 16. apríl, kl. 15:30 – 17:30
- Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 17. apríl, kl. 15-17
- Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 17. apríl, kl. 15:30- 17:30
- Vík - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 13:00 – 14:30
- Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 15:30-17:30
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 15-17
- Eir í Grafarvogi - föstudaginn 19. apríl, kl. 13-16
- Hrafnista - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-14
- Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-15
- Mörkin - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-14
- Kleppsspítali - mánudaginn 22. apríl, kl. 15-16
- Hegningarhúsið við Skólavörðustíg - mánudaginn 22. apríl, kl. 15:30-16:30
- Landspítalinn Grensásdeild - þriðjudaginn 23. apríl, kl. 17:00 -18:00
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi - fimmtudaginn 25. apríl, kl. 13-16
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 26. apríl, kl. 14-17