Utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum o.fl. í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur kynnt tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum o.fl. á vegum embættisins vegna alþingiskosninganna 27. apríl nk.:
- Hjúkrunarheimilið Sóltún - mánudaginn 15. apríl, kl. 13-14:30
- Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 16. apríl, kl. 13-15
- Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 16. apríl, kl. 15:30 – 17:30
- Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 17. apríl, kl. 15-17
- Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 17. apríl, kl. 15:30- 17:30
- Vík - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 13:00 – 14:30
- Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 15:30-17:30
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 18. apríl, kl. 15-17
- Eir í Grafarvogi - föstudaginn 19. apríl, kl. 13-16
- Hrafnista - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-14
- Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-15
- Mörkin - laugardaginn 20. apríl, kl. 11-14
- Kleppsspítali - mánudaginn 22. apríl, kl. 15-16
- Hegningarhúsið við Skólavörðustíg - mánudaginn 22. apríl, kl. 15:30-16:30
- Landspítalinn Grensásdeild - þriðjudaginn 23. apríl, kl. 17:00 -18:00
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi - fimmtudaginn 25. apríl, kl. 13-16
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 26. apríl, kl. 14-17