Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 6. október
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 6. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica. Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.
Fundurinn verður í sal A-B (stóra salnum) sem er staðsettur á jarðhæð hótelsins. Hann hefst kl. 16:00 og áætlað er að fundinum ljúki eigi síðar en kl. 17:30. Fundarstjóri verður Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Dagskrá fundarins:
- Setning
Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
- Ávarp ráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
- Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2020
Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
- Aðgengi að lífinu
Guðjón Sigurðsson aðgengisfulltrúi Öryrkjabandalags Íslands og María Lovísa Guðjónsdóttir
- Svæðisbundið hlutverk Akureyrar
Birgir Guðmundsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og formaður starfshóps um svæðisbundið hlutverk Akureyrar