Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2006
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrstu ellefu mánuði ársins 2006 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu jókst handbært fé frá rekstri um 52 milljarða króna innan ársins, sem er 30,1 milljarði hagstæðari útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Tekjur reyndust um 34 milljörðum hærri en í fyrra, ef undanskildar eru tekjur vegna sölu Landssímans hf., á meðan gjöldin hækka um 5 milljarða milli ára. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um tæpa 50 milljarða króna, en hann var jákvæður um rúma 70 milljarða á sama tíma árið áður.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar–nóvember
(Í milljónum króna)
|
2002 |
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
Innheimtar tekjur |
206.478 |
229.442 |
247.748 |
360.791 |
338.507 |
Greidd gjöld |
221.362 |
240.313 |
256.960 |
279.860 |
284.909 |
Tekjujöfnuður |
-14.884 |
-10.871 |
-9.213 |
80.931 |
53.598 |
Söluhagn. af hlutabréfum og eignarhlutum |
-3.252 |
-11.313 |
0 |
-58.088 |
-384 |
Breyting rekstrartengdra eigna og skulda |
-1.465 |
-503 |
1.036 |
-1.382 |
-1.182 |
Handbært fé frá rekstri |
-19.601 |
-22.687 |
-8.177 |
21.461 |
52.031 |
Fjármunahreyfingar |
9.585 |
21.056 |
17.734 |
48.960 |
-2.138 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
-10.016 |
-1.631 |
9.557 |
70.420 |
49.893 |
Afborganir lána |
-32.463 |
-30.666 |
-32.321 |
-61.597 |
-44.583 |
Innanlands |
-12.382 |
-18.216 |
-7.138 |
-14.089 |
-21.710 |
Erlendis |
-20.081 |
-12.450 |
-25.183 |
-47.508 |
-22.873 |
Greiðslur til LSR og LH |
-8.250 |
-6.875 |
-6.875 |
-5.132 |
-3.650 |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-50.728 |
-39.172 |
-29.639 |
3.691 |
1.660 |
Lántökur |
46.826 |
39.087 |
27.567 |
7.734 |
21.587 |
Innanlands |
16.054 |
33.367 |
11.440 |
7.734 |
21.345 |
Erlendis |
30.772 |
5.720 |
16.127 |
- |
242 |
Greiðsluafkoma ríkissjóðs |
-3.902 |
-86 |
-2.072 |
11.425 |
23.248 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 339 ma.kr. á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra voru þær 361 ma.kr. en þar af voru 57 ma.kr. í söluhagnað af Landssímanum. Sé litið fram hjá honum jukust heildartekjur á tímabilinu um 34 ma.kr. milli ára eða 11,3% sem þýðir 4,4% raunaukningu. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um 12,9% að nafnvirði eða 5,9% umfram verðbólgu.
Skattar á tekjur og hagnað námu 107 ma.kr. og jukust um 20% frá síðasta ári. Innheimt tryggingagjöld jukust um 16% milli ára, eða 6% umfram hækkun launavísitölu. Innheimta eignarskatta nam 8,3 ma.kr. en 6,5 ma.kr. innheimta stimpilgjalda fellur þar undir.
Innheimta skatta á vöru og þjónustu (svokallaðra veltuskatta) nam 160 ma.kr. og jókst um 5,9% að raunvirði. Þar af jukust tekjur af virðisaukaskatti um 7,7% að raunvirði. Þegar horft er á skemmri tímabil innan ársins ber að gæta þess að lagabreyting var gerð í ársbyrjun sem fól í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum og skekkir hún nokkuð samanburð milli ára. Sé horft á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánaða kemur þó fram að jafnt og þétt hefur hægt á raunvexti tekna af veltusköttum það sem af er árinu. Þannig mælist nú 0,8% samdráttur milli ára í tekjum af veltusköttum í heild miðað við 4 mánaða hreyfanlegt meðaltal.
Tekjur ríkissjóðs janúar–nóvember 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2004 |
2005 |
2006 |
|
2004 |
2005 |
2006 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
230.318 |
279.390 |
315.415 |
|
13,6 |
21,3 |
12,9 |
Skattar á tekjur og hagnað |
71.555 |
89.310 |
107.233 |
|
13,1 |
24,8 |
20,1 |
Tekjuskattur einstaklinga |
55.686 |
61.599 |
69.602 |
|
11,3 |
10,6 |
13,0 |
Tekjuskattur lögaðila |
7.830 |
11.978 |
22.730 |
|
30,6 |
53,0 |
89,8 |
Skattur á fjármagnstekjur |
8.039 |
15.733 |
14.900 |
|
11,1 |
95,7 |
-5,3 |
Eignarskattar |
10.931 |
14.381 |
8.256 |
|
42,6 |
31,6 |
-42,6 |
Skattar á vöru og þjónustu |
118.705 |
142.024 |
160.341 |
|
12,3 |
19,6 |
12,9 |
Virðisaukaskattur |
79.903 |
96.785 |
111.166 |
|
13,1 |
21,1 |
14,9 |
Vörugjöld af ökutækjum |
5.585 |
9.378 |
9.523 |
|
36,4 |
67,9 |
1,5 |
Vörugjöld af bensíni |
7.859 |
8.261 |
8.486 |
|
12,7 |
5,1 |
2,7 |
Skattar á olíu |
5.683 |
3.993 |
6.070 |
|
18,9 |
-29,7 |
52,0 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
9.180 |
9.782 |
10.245 |
|
2,9 |
6,6 |
4,7 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
10.495 |
13.825 |
14.852 |
|
2,2 |
31,7 |
7,4 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
2.765 |
3.074 |
4.131 |
|
16,2 |
11,2 |
34,4 |
Aðrir skattar |
1.352 |
1.490 |
1.643 |
|
. |
10,2 |
10,3 |
Tryggingagjöld |
25.010 |
29.112 |
33.811 |
|
9,3 |
16,4 |
16,1 |
Fjárframlög |
410 |
357 |
1.347 |
|
-57,8 |
-12,9 |
277,1 |
Aðrar tekjur |
16.597 |
22.957 |
20.793 |
|
19,2 |
38,3 |
-9,4 |
Sala eigna |
423 |
58.086 |
952 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
247.747 |
360.790 |
338.507 |
|
8,0 |
45,6 |
-6,2 |
Greidd gjöld námu 285 milljörðum króna og hækkuðu um 5 milljarða frá fyrra ári. Frávik eru meiri á einstökum liðum. Vaxtagreiðslur lækka um 8,2 milljarða, einkum vegna þess að stór flokkur spariskírteina var á innlausn í apríl 2005. Þá lækkar greiddur fjármagnstekjuskattur um 6,1 milljarð milli ára vegna sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Landssímanum hf. í fyrra. Að vaxtagreiðslum og fjármagnstekjuskatti undanskildum hækka gjöldin um 19,3 milljarða eða 7,5%. Þar munar mest um 5,9 milljarða hækkun heilbrigðismála og 3,3 milljarða til menntamála. Þá hækka greiðslur til almannatrygginga- og velferðarmála um 3,1 milljarð og til almennrar opinberrar þjónustu um 2,5 milljarða.
Gjöld ríkissjóðs janúar–nóvember 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2004 |
2005 |
2006 |
|
2005 |
2006 |
Almenn opinber þjónusta |
42.018 |
55.116 |
43.419 |
|
31,2 |
-21,2 |
Þar af vaxtagreiðslur |
12.672 |
17.203 |
9.018 |
|
35,8 |
-47,6 |
Heilbrigðismál |
68.233 |
71.952 |
77.894 |
|
5,5 |
8,3 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
61.344 |
64.328 |
67.437 |
|
4,9 |
4,8 |
Efnahags- og atvinnumál |
38.762 |
37.794 |
38.736 |
|
-2,5 |
2,5 |
Menntamál |
24.098 |
27.644 |
30.975 |
|
14,7 |
12,1 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
11.325 |
11.270 |
12.764 |
|
-0,5 |
13,3 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
8.097 |
8.243 |
9.917 |
|
1,8 |
20,3 |
Umhverfisvernd |
2.876 |
3.110 |
3.374 |
|
8,1 |
8,5 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
219 |
403 |
395 |
|
84,2 |
-2,1 |
Gjöld alls |
256.972 |
279.860 |
284.909 |
|
8,9 |
1,8 |
Lántökur ársins nema 21,6 milljörðum króna en afborganir lána 44,6 milljörðum. Mismunurinn er fjármagnaður með handbæru fé frá rekstri.
Greiddir voru 3,7 milljarðar til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.