Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 120/2024 Úrskurður 20. nóvember 2024

Mál nr. 120/2024                  Millinafn:       Brettingur

                                             Eiginafn:        Brettingur (kk.)

 

 

Hinn 20. nóvember 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 120/2024 en erindið barst nefndinni 6. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  1. Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  2. Nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  3. Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Brettingur er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sér hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn. Í máli þessu reynir hins vegar á 1. lið skilyrðanna. Millinafnið Brettingur hefur nefnifallsendinguna -ur og fullnægir þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

Til vara er þess krafist að Brettingur (kk.) verði samþykkt sem eiginnafn. Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Brettingur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Brettings, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Brettingur er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Brettingur (kk.)  er samþykkt og skal það fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta