Samráð skilar árangri
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, fagnaði þeirri ákvörðun stjórnar BHM að taka upp samstarf við stjórnendur Landspítala vegna uppsagna og endurskipulagningar í stað þess að efna til málaferla. Sagði ráðherra það reynslu sína að samráð og samvinna skilaði meiri árangri en átök og deilur.