Nýr vefur hjúkrunar á upplýsingavef Landspítala
Settur hefur verið nýr vefur hjúkrunar á upplýsingavef Landspítala – háskólasjúkrahúsi (LSH). Gyða Baldursdóttir formaður hjúkrunarráðs opnaði vefinn á fundi sviðsstjóra í hjúkrun á LSH í fundarsal á Eiríksstöðum. Sérstakt tilefni fundarins var alþjóðlegur dagur hjúkrunar, 12. maí, sem er fæðingardagur Florence Nightingale. Gestur á fundinum var Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu.
Vefslóðin: http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/index.html