Hoppa yfir valmynd
6. september 2017 Utanríkisráðuneytið

Sendifulltrúar Rauða krossins í Úganda

Redcrossuganda1Sálfræðingarnir og sendifulltrúarnir Jóhann Thoroddsen og Elín Jónasdóttir eru stödd í Úganda þar sem þau þjálfa sjálfboðaliða og starfsfólk Rauða krossins í Úganda í sálrænum stuðningi og að bregðast við áföllum, en mikill fjöldi flóttamanna hefur leitað skjóls í Úganda síðastliðna mánuði. Þau hafa lagt áherslu á kynjajafnrétti í fræðslu sinni og hvernig eigi að mæta fólki sem orðið hefur fyrir kynferðislegri áreitni.

Á vef Rauða krossins kemur fram að þau fóru til Úganda í apríl síðastliðnum og eru nú að fylgja þeirri ferð eftir, kanna hvernig áætlanir hafa gengið eftir, auk þess hvað megi betur fara. Leiðbeinendur sem þau hafa hitt undanfarið höfðu allir þá sögu að segja að námskeiðið sem þau héldu í maí hefði styrkt þau sem manneskjur og sjálfboðaliða og gert þeim auðveldara að mæta flóttafólkinu og takast á við þær erfiðu áskoranir sem því fylgja. Jóhann segir þau Elínu "hafa verið eins og stolta foreldra þegar sjálfboðaliðarnir voru að segja frá, því þau voru svo flott og við sáum að þetta hafði breytt þeim."

Með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina hefur Rauði krossinn á Íslandi styrkt Rauða krossinn í Úganda við að taka á móti hundruð þúsunda flóttamanna í samvinnu við stjórnvöld og aðra aðila. 

"Takk fyrir ykkar stuðning utanríkisráðuneytið og Mannvinir."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta