Hoppa yfir valmynd
10. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 105/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 105/2024

Föstudaginn 10. maí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 22. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 21. janúar 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 5. mars 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. apríl 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. apríl 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála óskar kærandi eftir endurskoðun á umsókn hans um atvinnuleysisbætur þar sem hún hafi verið samþykkt með biðtíma. Kærandi hafi misst starf sitt eftir fjögur ár í vinnu vegna munnlegra áminninga en hann hafi talið sig vera að sinna starfinu. Kærandi hafi einungis fengið greiddan einn mánuð í uppsagnarfrest og ekkert sumarfrí þar sem orlof hafi verið greitt með launum. Stéttarfélagið VR sé að skoða málið fyrir kæranda en hann vanti laun í marsmánuði þar sem hann sé kominn með vinnu í apríl.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 21. janúar 2024. Með erindi, dags. 13. febrúar 2024, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á uppsögn af hálfu atvinnurekanda en í staðfestingu á starfstímabili frá atvinnurekanda hafi komið fram að kæranda hefði verið sagt upp störfum vegna brota í starfi. Þá hafi kærandi einnig skilað inn uppsagnarbréfi frá atvinnurekanda sem hafi verið móttekið 30. janúar 2024.

Skýringar kæranda hafi borist þann 16. febrúar 2024. Með erindi, dags. 19. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hafi kæranda verið gert að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Þá segi í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar orðrétt:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysistryggingar skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysistryggingar í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks.

Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysistryggingar án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem séu talin heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um sé að ræða þau tilvik er maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.

Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysistryggingar skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ljóst sé að kæranda hafi verið sagt upp störfum hjá B þann 18. janúar og í uppsagnarbréfi segi að ástæður uppsagnar séu rangt skráðar vöruúttektir og að engar úrbætur hafi átt sér stað hjá kæranda þrátt fyrir margar munnlegar áminningar. Þá hafi kærandi staðfest framangreint í skýringarbréfi sínu.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki túlkast öðruvísi en viðurkenning á því að kærandi hafi með athafnaleysi sínu, eða athöfnum, mátt vera meðvitaður um að með því að verða ekki við beiðni um úrbætur lægi fyrir að atvinnurekandi myndi slíta ráðningarsambandi við hann. Almennt verði sá sem sé valdur að eigin uppsögn að færa fram skýringar sem flokkist undir gildar ástæður í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef hann sæki um atvinnuleysistryggingar í kjölfar starfsloka. Slík niðurstaða leiði af markmiði laga um atvinnuleysistryggingar og því grundvallarsjónarmiði að baki atvinnuleysistryggingakerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks.

Skýringar kæranda bendi til þess að honum hafi verið sagt upp starfi í kjölfar ítrekaðra áminninga og kröfu um úrbætur sem hann hafi ekki orðið við. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á starfslokum geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og beri honum að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 1. mgr. 54. gr.

Í ljósi alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta tveggja mánaða biðtíma á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til starfsloka hans.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kæranda var sagt upp störfum hjá B og kemur því til skoðunar hvort hann hafi sjálfur átt sök á uppsögninni. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Í fyrirliggjandi uppsagnarbréfi, dags. 18. janúar 2024, kemur fram að ástæða uppsagnar kæranda sé vegna margra munnlegra áminninga í starfi sem hafi ekki verið fylgt eftir sem og að vöruúttektir hafi ekki verið rétt skráðar. Af skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar og kæru til úrskurðarnefndar verður ráðið að um réttar upplýsingar sé að ræða. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi misst starf sitt af ástæðu sem hann átti sjálfur sök á. Kærandi átti því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2024,  um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta