Hoppa yfir valmynd
11. september 2018 Utanríkisráðuneytið

Loftslagsbreytingar auka á hungrið í heiminum

Ljósmynd FAO/IFAD/WFP Patterik Wiggerr - mynd

Að mati Sameinuðu þjóðanna sveltur 821 milljón jarðarbúa og 150 milljónir barna eru með vaxtarhömlun vegna vannæringar. Varað er við því að annað Heimsmarkmiðið, að útrýma hungri og vannæringu, sé í hættu. Loftslagsbreytingar eru ein helsta skýringin á auknum matarskorti í heiminum.

Í nýrri stöðuskýrslu um fæðuöryggi og næringu í heiminum – The State of Food Security and Nutrition in the World 2018 – sem kom út í morgun kemur fram að hungrið í heiminum heldur áfram að aukast. Á síðasta ári hafi 821 milljón manna búið við sult, eða einn af hverjum níu jarðarbúum. Skýrsluhöfundar segja lítið gert til þess að bregðast við ýmsum birtingarmyndum vannæringar, allt frá vaxtarhömlun barna til offitu fullorðinna, sem ógni heilsu hundruð milljóna manna.

Í fjölmörg ár dró sífellt úr hungri í heiminum en á síðustu þremur árum hefur það aftur færst í aukana. Þessi öfugþróun felur í sér skýr aðvörunarmerki um að brýnna aðgerða sé þörf ef ætlunin sé að ná öðru Heimsmarkmiðinu um að útrýma hungri fyrir árið 2030.

Ástandið hefur versnað í Suður-Ameríku og víðast hvar í Afríku. Hins vegar hefur dregið markvert úr langvarandi vannæringu sem einkenndi Asíuríki um áratugaskeið.

Í skýrslunni eru skýringar á auknum matarskorti sagðar bæði að finna í loftslagsbreytingum, flóðum, þurrkum og ofsaveðri, en einnig í átökum og efnahagslægðum.

Fimm stofnanir koma að gerð skýrslunnar, Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO), Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD), Matvælaáætlun SÞ (WFP), Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO).

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta