Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sólveig Guðrún Hannesdóttir er nýr rektor Menntaskólans í Reykjavík

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur í embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst.

Sólveig hefur starfað sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík frá árinu 2008 og verið fagstjóri í líffræði og jarðfræði við skólann. Hún hefur átt sæti í skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara frá árinu 2018 og í stjórn Samlífs, félags líffræðikennara frá árinu 2013. Á árunum 2004–2015 var hún matsaðili umsókna um styrki frá Rannís.

Sólveig er með B.S.-próf í sameindalíffræði, frumulíffræði og örverufræði frá Háskóla Íslands og doktorspróf í ónæmisfræði frá University College í Lundúnum. Hún lauk námi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands árið 2007 og diplómaprófi í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla árið 2021. Sólveig var nýdoktor (Post-doc) við Landspítala – Háskólasjúkrahús árin 2001–2008 og sinnti á sama árabili kennslu við líffræðideild, hjúkrunarfræðideild og læknadeild Háskóla Íslands.

Alls sóttu sex um embættið. Einn dró umsókn sína til baka.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta