Hoppa yfir valmynd
18. júlí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 58/2018 Úrskurður 18. júlí 2018

Mál nr. 58/2018                    Eiginnafn:     Aveline (kvk.)

 

 

 

 

Hinn 18. júlí 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2018 en erindið barst nefndinni 6. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

1.      Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

2.      Nafnið má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi.

3.      Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

4.      Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

5.      Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. 1 hér að ofan. Nafnið Aveline tekur ekki íslenskri eignarfallsendingu, það er eins í öllum föllum. En eins og fram kemur hér á undan er hægt að víkja frá skilyrði nr. 1 ef nafn hefur unnið sér hefð. Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 15. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

a.      Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.     Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

e.      Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár ber engin kona nafnið Aveline sem uppfyllir skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna er ekki unnt að líta svo á að nafnið Aveline hafi unnið sér hefð í íslensku máli skv. lögum, nr. 45/1996, um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Aveline (kvk.) er hafnað.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta