Öryggi iðkenda í fyrirrúmi
„Hópurinn skilaði til okkar afar greinargóðu yfirliti og gagnlegum tillögum sem við munum svo vinna með áfram – þetta er brýnt mál sem snertir okkur öll. Samfélagið er að ganga í gegnum vitundarvakningu um málefni sem tengjast kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun. Það er okkar markmið að tryggja að allir njóti verndar í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og að því munum við vinna í góðri samvinnu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Meðal tillagna hópsins eru:
• Að til staðar sé óháður aðili sem getur tekið við símtölum, tilkynningum eða öðrum samskiptum um ofbeldi og aðra óæskilega hegðun og komið þeim í réttan farveg. Slíkur ráðgjafi gæti einnig leiðbeint við gerð siðareglna og viðbragðsáætlana og sinnt upplýsingagjöf og fræðslu um málefnið.
• Að skýrir og samhæfðir verkferlar og viðbragðsáætlanir séu til staðar hjá félögum og samtökum í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
• Að fræðsluefni um kynferðislegt ofbeldi og óæskilega hegðun sé samræmt og að allir sem bera ábyrgð á íþrótta- og æskulýðsstarfi hafi grunnþekkingu á því hvernig bregðast eigi við þegar upp koma mál sem tengjast áreitni eða ofbeldi.
• Að unnið sé markvisst í jafnréttismálum á vegum íþróttahreyfingarinnar. Aukið jafnrétti getur haft jákvæð áhrif á ýmsa þætti í íþróttastarfi og þar með dregið úr áreitni og ofbeldishegðun.
• Mikilvægt er að íþróttahreyfingin setji sér siðareglur og hegðunarviðmið, kanni bakgrunn þeirra sem koma að íþróttastarfi og kynni fyrir þeim þær reglur sem gilda í starfinu. Sé vafi til staðar vegna einstaklings sem fyrirhugað er að ráða eða fá til starfa sem sjálfboðaliða er mikilvægt að horfa fyrst og fremst til hagsmuna iðkenda.
• Að ríki og sveitarfélög sem styðja íþrótta- og æskulýðsstarf með aðstöðu og fjárframlögum setji skilyrði í alla samninga við íþrótta- og æskulýðshreyfinguna að félögin séu með viðbragðsáætlun á þessu sviði og stuðli þannig að aukinni þekkingu, meðvitund og réttum viðbrögðum þegar áreitni eða ofbeldismál koma upp.
• Að óheimilt verði að ráða til starfa hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma fyrir brot sem falla undir kynferðisbrotakafla hegningarlaga. Hliðstæð ákvæði er þegar að finna í æskulýðslögum, grunnskólalögum og barnaverndarlögum. Mikilvægt er að einfalda verkferla fyrir íþrótta- og æskulýðshreyfinguna til þess að afla slíkra upplýsinga frá opinberum aðilum.
Tillögur þessar snerta ýmsa aðila er koma að íþrótta- og æskulýðsstarfi, s.s. íþróttahreyfinguna, æskulýðsfélögin, sveitarfélög og stjórnvöld. Að mati starfshópsins er mikilvægt að þessir aðilar séu samtaka um aðgerðir á þessu sviði. Næstu skref verða að kynna tillögur þessar betur fyrir þeim er málið varðar, svo sem forsvarsmönnum íþróttahreyfingarinnar og á vettvangi sveitarfélaganna.
Starfshópinn skipuðu:
• Auður Inga Þorsteinsdóttir, tilnefnd af UMFÍ
• Ása Ólafsdóttir, tilnefnd af ÍSÍ
• Elísabet Pétursdóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
• Guðni Olgeirsson, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti
• Hafdís Inga Hinriksdóttir, tilnefnd af hópi íþróttakvenna
• Heiðrún Janusardóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
• Jóna Pálsdóttir tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
• Óskar Þór Ármannsson formaður, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti
• Valgerður Þórunn Bjarnadóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Sjá nánar um tillögur starfshópsins.