Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru kynntar á alþjóðlegum degi kennara 5. október. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum.
Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennara, framúrskarandi þróunarverkefni og framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Þá verða að auki veitt hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
Tilnefningar hljóta að þessu sinni:
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Þessar stofnanir eru tilnefndar:
- Árskóli á Sauðárkróki fyrir forystu um fjölbreytt og faglegt skólaþróunarstarf sem hefur verið öðrum skólum góð fyrirmynd.
- Fellaskóli í Reykjavík fyrir fjölmenningarlega og skapandi kennsluhætti þar sem byggt er á virðingu fyrir félagslegum og menningarlegum margbreytileika.
- Listasafn Íslands fyrir öflugt fræðslustarf og að gefa út Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi, metnaðarfullt og framsækið námsefni í mynd- og menningarlæsi sem nýtist ólíkum nemendahópum á öllum skólastigum.
B. Framúrskarandi kennari
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Tilnefndir eru þessir kennarar:
- Dóra Guðrún Wild kennari við leikskólann Hlaðhamra í Mosfellsbæ, fyrir faglega og metnaðarfulla leikskólakennslu, meðal annars útinám og fyrir að auðga líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttu lista- og menningarstarfi.
- Guðrún Sigurðardóttir kennari við leikskólann Gimli í Reykjanesbæ fyrir einstaka fagmennsku og ástríðu í leikskólastarfi þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti, styðjandi umhverfi, samkennd og traust.
- Hrafnhildur Sigurðardóttir kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt.
- Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir kennari við Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir þróunarstarf við að innleiða námskrá í kynheilbrigðisfræðslu með áherslu á sjálfs- og líkamsímynd.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd:
- Menntun hugar og hjarta – nemandinn sem manneskja:
Þróunarverkefni í Háteigsskóla þar sem markvisst er unnið að því að efla sterka tilfinninga-, samskipta- og sjálfsþekkingargreind. - Snjallræði – þróunarverkefni í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ:
Heildstæð nýsköpunarkennsla sem nær frá leikskólastigi til unglingastigs. - Sviðslistabraut við Menntaskólann á Akureyri:
Kjörnámsbraut sem miðar að því að veita nemendum innsýn í töfraheima sviðslistanna og hinar ýmsu hliðar og störf innan sviðslistaheimsins.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Tilnefningar fá:
- Rafmennt fyrir þróun sveigjanlegs og einstaklingsmiðaðs náms í raf- og tæknigreinum.
- Verkmenntaskóli Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.
- Þröstur Jóhannesson, kennari við Menntaskólann á Ísafirði, fyrir þróun vandaðs verknáms með áherslu á nútímatækni og sjálfbærni.