Elstu og yngstu frambjóðendurnir
Elsti frambjóðandinn í kosningunum 31. maí næstkomandi er 96 ára gamall karlmaður, fæddur 14. apríl 1918. Sá næstelsti er á 91. aldursárinu. Verma þeir báðir heiðurssæti. Tvær elstu konurnar eru fæddar 1927, eru á 87. aldursárinu, og eru einnig í heiðurssætum.
Yngsti frambjóðandinn er 18 ára, fæddur 28. apríl 1996. Af tæplega þrjú þúsund einstaklingum, sem eru á framboðslistum, eru sjö 18 ára - tveir kvenkyns og fimm karlkyns.