Hoppa yfir valmynd
31. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Ísland veitir 400 milljónum í neyðaraðstoð í Afganistan

Utanríkisráðherra tilkynnti um samtals 400 milljóna króna framlag Íslands til neyðaraðstoðar í Afganistan á fjáröflunarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þar af er 360 milljóna króna framlag fyrir tímabilið 2022-2024 sem skiptist milli Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá tilkynnti ráðherra einnig um fjörtíu milljóna króna framlag til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Um er að ræða áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu og lykilstofnanir í verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. 

Afganska þjóðin stendur frammi fyrir mikilli neyð en áætlað er að 24 milljónir íbúa þurfi á mannúðaraðstoð að halda þar sem lífskjör hafa hríðversnað og um helmingur afgönsku þjóðarinnar býr við mikið fæðuóöryggi. Í ávarpi sínu ítrekaði utanríkisráðherra einnig mikilvægi þess að tryggja aðgang stúlkna að menntun. 

„Áframhaldandi skerðing grundvallar mannréttinda undir stjórn Talibana veldur miklum vonbrigðum. Einkum er ákvörðun þeirra um að útiloka stúlkur frá mið- og gagnfræðiskólanámi mikið áhyggjuefni og mun valda miklum skaða, ekki einungis fyrir stúlkurnar sjálfar og fjölskyldur þeirra, heldur fyrir framtíð Afganistan,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra meðal annars. 

Sameinuðu þjóðirnar boðuðu til fundarins í dag í ljósi grafalvarlegrar stöðu íbúa í Afganistan en mannúðarákall Sameinuðu þjóðanna fyrir Afganistan þetta árið nemur 4,4 milljörðum Bandaríkjadala. Er þetta stærsta ákall Sameinuðu þjóðanna til þessa, enda hefur þörfin fyrir mannúðaraðstoð þrefaldast frá því sem hún var í fyrra. Ísland leggur eftir sem áður áherslu á fyrirsjáanleg framlög, ekki síst í mannúðaraðstoð. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
16. Friður og réttlæti
4. Menntun fyrir öll
5. Jafnrétti kynjanna
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta