Mál nr. 23/2017 Úrskurður 18. apríl 2017
Mál nr. 23/2017 Eiginnafn: Annmar
Hinn 18. apríl 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2017 en erindið barst nefndinni 31. mars.
Eiginnafnið Annmar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Annmars og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Annmar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.