Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Höfn næsti viðkomustaður: Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Verið öll hjartanlega velkomin á opinn fund á Höfn í Hornafirði á þriðjudag kl. 12:00. - mynd

Hornafjörður er næsti viðkomustaður í hringferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Opinn samráðsfundur fer fram í Nýheimum þekkingarsetri á Höfn þriðjudaginn 15. ágúst kl. 12:00.

Guðmundur Ingi hefur síðan í vor boðið til samráðsfunda um landið vegna landsáætlunar. Fundirnir hafa verið vel sóttir og góðar umræðir spunnist. Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

Viðkomustaðir í hringferðinni:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (B-59)

19. júní – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (Edinborgarhúsið)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (Berjaya Hérað Hotel)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Reykjavík kl. 17 (Grand hótel – Háteigur)

15. ágúst – Höfn kl. 12 (Nýheimar þekkingarsetur)

18. ágúst – Sauðárkrókur kl. 17 (Grána Bistro)

29. ágúst – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 17

Dagskrá:

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta