29 þúsund tonnum aflamagns ráðstafað til sérstakra aðgerða á fiskveiðiárinu 2020/21
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ráðstafað rúmlega 29 þúsund tonnum aflamagns í bolfiski til sérstakra aðgerða. Er það nokkuð minna magn en á síðasta fiskveiðiári sem skýrist af samdrætti í leyfilegum heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár sem fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Um árlega úthlutun er að ræða sem byggir á lögum um stjórn fiskveiða en samkvæmt þeim er 5,3% af afla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, línuívilnunar, strandveiða, rækju- og skelbóta, frístundaveiða og annarra tímabundinna ráðstafana. Hér getur að líta yfirlit um breytingar í aflamagni á milli fiskveiðiára (tonn):
2020/21 |
2019/20 |
|
Strandveiðar |
11.100 |
11.100 |
Línuívilnun |
2.229 |
3.445 |
Almennur byggðakvóti |
6.128 |
7.069 |
Skel- og rækjubætur |
2.466 |
2.513 |
Frístundaveiðar |
300 |
300 |
Aflamark Byggðastofnunar |
6.857 |
6.899 |
Samtals aflamagn: |
29.080 |
31.326 |
Reglugerðir um úthlutun má finna hér: