Hoppa yfir valmynd
18. október 2021 Utanríkisráðuneytið

Hungruðum fjölgar um 140 milljónir

Ljósmynd: WFP/Sean Rajman - mynd

Sameinuðu þjóðirnar kölluðu eftir því á laugardag, á alþjóðlega matvæladeginum, að bæta þyrfti fæðuöryggi fyrir þann hluta mannkyns sem býr við örbirgð. Tæplega einn milljarður jarðarbúa hefur ekki nóg að borða.

Í ávarpi í tilefni dagsins kallaði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna eftir kröftugum aðgerðum og fjárfestingum til að efla staðbundna matvælaframleiðslu. Hann sagði að hartnær fjörutíu pósent alls mannkyns, um þrír milljarðar jaðarbúa, hafi ekki efni á heilsusamlegri fæðu. Meðal þeirra sem væru í mestri áhættu nefndi hann flóttafólk og þau sem væru á hrakhólum innan eigin ríkis vegna átaka.

„Heimsfaraldurinn hefur leitt til þess að þeim sem eiga tæpast til hnífs og skeiðar hefur fjölgað um 140 milljónir. Á sama tíma taka framleiðsluaðferðir okkar, neysla og matarsóun þungan toll af jörðinni og ógnar náttúruauðlindum okkar, loftslagi og náttúrulegu umhverfi – og kostar okkur himinháar fjárhæðir,“ sagði Guterres.

Myndband frá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) um umfang verkefna stofnunarinnar sem veitir um 100 milljónum manna í 88 löndum matvælaaðstoð á hverju ári.

Sameinuðu þjóðirnar vara við því að hungur færist í aukana og tilgreinir sem ástæður stríðsátök, fólksflutninga, loftslagsbreytingar og efnahagsleg áhrif COVID-19.

Alþjóðlegi matvæladagurinn, 16. október, er jafnframt stofndagur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), sem sett var á laggirnar þann dag árið 1945.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta