Hoppa yfir valmynd
25. október 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 444/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. október 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 444/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18090028

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. september 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. september 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi gerir aðallega þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 1. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laganna.

Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 25. maí 2018. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 30. júlí 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. september 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 4. september 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 18. september 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 27. september 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 26. apríl 2020.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var einnig mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá kom fram að kærandi skyldi endursendur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni vísar kærandi til endurrits af viðtali hans hjá Útlendingastofnun þar sem fram komi lýsing hans á aðstöðuleysi og vosbúð þeirri sem hann hafi búið við í Grikklandi. Honum hafi verið neitað læknisaðstoð auk þess sem hann hafi orðið fyrir kynþáttafordómum, ofbeldi og aðkasti af hálfu flóttamanna, heimamanna og lögreglu þar í landi. Kærandi kveðst óttast fordóma og að verða rændur og misnotaður í Grikklandi. Þá komi fram að kærandi glími við verki eftir mótorhjólaslys sem hann hafi orðið fyrir […], auk minnisleysis. Kærandi hafi orðið fyrir pyndingum í heimaríki eftir andlát föður síns og hafi hann óskað eftir því að fá að hitta sálfræðing til að ræða það en ekki fengið slíkan tíma.

Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í frásögn kæranda komi fram þættir sem bendi til þess að hann sé í viðkvæmri stöðu sem kalli á ítarlegt mat af hálfu stjórnvalda, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, auk almennra rannsóknarreglna stjórnsýsluréttarins. Kærandi telji sig hafa orðið fyrir pyndingum í heimaríki auk þess sem hann hafi lent í slysi sem hafi haft varanlegar afleiðingar á líkamlega og andlega heilsu hans. Þetta sé í ofanálag við þær þjáningar, ofbeldi og mismunun sem hann hafi mátt þola sem flóttamaður í Grikklandi. Kærandi bendi á að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í máli hans án þess að fyrir lægi mat sérfræðings á andlegri heilsu hans og að slíkt varði ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Kærandi gerir einnig athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Kærandi bendi á að mikilvægt sé að gerður sé greinarmunur á þeim réttindum sem einstaklingum með alþjóðlega vernd séu tryggð lögum samkvæmt og hvort réttindin séu í raun virt í framkvæmd. Kærandi hafi lýst skorti á læknisþjónustu, hann hafi verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglu og ekki fengið úthlutað húsnæði þegar hann dvaldi í Grikklandi. Þá hafi maturinn sem hann hafi fengið verið óhreinn og fjárhagsaðstoðin verið mjög lág. Telji kærandi að með tilliti til ástands flóttamannamála í Grikklandi, erfiðrar reynslu kæranda þar í landi og frásagnar hans af því ofbeldi sem hann hafi mátt þola, séu horfur hans svo slæmar að ekki sé unnt að endursenda hann í slíkar aðstæður. Byggir kærandi á því að hann muni eiga verulega erfitt uppdráttar í Grikklandi verði hann sendur þangað aftur.

Þá gerir kærandi jafnframt athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 í tengslum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af úrskurðum kærunefndar sé ljóst að nefndin hafi við túlkun sína á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga gert mun minni kröfur um alvarleika en gerðar séu í umræddri reglugerð og hinni kærðu ákvörðun við mat á heilsufari og sérstökum ástæðum. Einnig séu skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 80/2016 um útlendinga. Lögin geri það ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir skyndilegum, lífshættulegum sjúkdómi til þess að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Það sé því hvergi að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar hafi því enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Komist kærunefnd, þrátt fyrir framangreint, að þeirri niðurstöðu að reglugerðin eigi við þá séu aðstæður kæranda það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Fallist kærunefnd ekki á kröfu kæranda um að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi er sú krafa gerð til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga vegna framangreindra annmarka.

Í greinargerð kæranda kemur fram að í ljósi aðstæðna umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna í Grikklandi telji hann að ekki sé ástæða til að beita undantekningarákvæðum a-c liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að taka eigi umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærandi bendi á að það séu ekki einungis umsækjendur um alþjóðlega vernd sem séu sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur, einstaklingar með alþjóðlega vernd séu það einnig. Aðalkrafa kæranda byggir á því að taka skuli umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar hann til lögskýringargagna og úrskurða kærunefndar útlendingamála til stuðnings þeirri kröfu. Þá vísar kærandi einnig til úrskurða kærunefndar til stuðnings þeirri fullyrðingu sinni að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kærandi bendir að lokum á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og annarra alþjóðasamninga. Þá telur kærandi að endursending hans til Grikklands brjóti gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þannig beri að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar kærandi til þess að samkvæmt áralangri stjórnsýsluframkvæmd hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Heimildir beri með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd sé síður en svo skárri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 21. apríl 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 26. apríl 2020. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […], einhleypur og barnlaus karlmaður sem glímir við verki og kvilla vegna mótorhjólaslyss sem hann kveðst hafa lent í fyrir þremur árum. Þá finni kærandi fyrir andlegri vanlíðan og vísar til þess að hann og bróðir hans hafi orðið fyrir ofbeldi í heimaríki. Þá hafi kærandi orðið fyrir aðkasti og ofbeldi í Grikklandi af hendi lögreglumanna, heimamanna og annarra flóttamanna. Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í landinu.

Þá má sjá í framangreindum gögnum að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á aðgengi að húsnæði. Fá gistiskýli eru þó í boði fyrir heimilislausa í Grikklandi auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst fyrir heimilislausa í Grikklandi að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem sendir hafa verið til baka frá öðrum Evrópuríkjum. Í janúar 2018 fengu um 3000 einstaklingar með alþjóðlega vernd húsnæði og um 6000 einstaklingar fjárhagsaðstoð.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegrar greiðslu. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, t.d. fyrir einstaklinga sem eru fórnarlömb pyndinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. apríl 2018 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Þá kemur fram að stjórnarskrá Grikklands og lög landsins leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá segir að ofbeldisbrot af hálfu lögreglunnar séu rannsökuð, m.a. af umboðsmanninum í Grikklandi til þess að staðhæfa hvort brot hafi átt sér stað.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að þó svo að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé slíkt eitt og sér ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um þann alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðaraðstæður sem mæli gegn flutningi einstaklings, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar, þegar horft er til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi og aðstæðna kæranda í heild sinni, að kærandi eigi ekki í yfirvofandi hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Grikklandi í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Grikklands feli ekki í sér brot á 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, en kærandi kveður m.a. að hann hafi upplifað kynþáttafordóma og annað misrétti í Grikklandi. Frásögn kæranda kemur að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum.

Samkvæmt gögnum málsins glímir kærandi m.a. við líkamlega áverka vegna slyss. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Þá eiga þeir einnig rétt á endurgjaldslausum lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá má jafnframt ráða af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað til lögreglu eða annarra stjórnvalda verði á honum brotið.

Svo sem fram hefur komið byggir kærandi m.a. á því í greinargerð sinni að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Vísar kærandi í því sambandi til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 og 29. maí 2018 í málum nr. 550/2017 og 242/2018 þar sem fallist var á kröfur kærenda, sem áður höfðu hlotið alþjóðlega vernd í Búlgaríu og á Ítalíu, um að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu aðila fyrrgreindra mála, m.a. í ljósi þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki og að aðstæður aðila í þessum málum voru aðrar.

Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kæranda að áralöng stjórnsýsluframkvæmd íslenskra stjórnvalda, um að heimila ekki endursendingar til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi við í máli kæranda. Ljóst er að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar þar í landi og því komi slík endursending ekki til skoðunar í máli hans.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Grikklandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 30. júlí 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 25. maí 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi hvorki rannsakað né rökstutt mál kæranda með fullnægjandi hætti. Þá gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í málinu án þess að fyrir lægi mat sérfræðings á andlegri heilsu hans. Samkvæmt gögnum málsins leiðbeindi Útlendingastofnun kæranda um að leggja fram gögn um heilsufar. Kærunefnd telur ekki tilefni til að gera athugasemd við framangreinda framkvæmd stofnunarinnar enda hafi kæranda gefist kostur á að leggja fram gögn um heilsufar bæði við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun og við meðferð málsins hjá kærunefnd. Þá bendi gögn málsins ekki til þess að kærandi glími við alvarleg veikindi. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Af greinargerð kæranda verður ráðið að hann telji ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 276/2018, ekki eiga sér viðhlítandi stoð í lögum og ganga gegn lögmætisreglunni. Þá telji hann að skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í lögum og úrskurðum kærunefndar. Af því tilefni tekur kærunefnd fram að reglugerðin er sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 23. maí 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 25. maí 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                                                                           Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta