Starfshópur um umbætur á húsnæðismarkaði skipaður
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað starfshóp um umbætur á húsnæðismarkaði. Verkefni hópsins er m.a. að fjalla um leiðir til að auka framboð á húsnæði til að mæta uppsafnaðri og fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa til lengri og skemmri tíma og um leiðir til að stuðla að auknum stöðugleika á húsnæðismarkaði.
Starfshópurinn er skipaður í kjölfar samtals stjórnvalda og heildarsamtaka á vinnumarkaði á vettvangi þjóðhagsráðs og sem framhald vinnu átakshóps í húsnæðismálum sem skilaði tillögum í janúar 2019. Af rúmlega 40 aðgerðum sem ákveðið var að ráðast í er 27 lokið en vinna við aðrar er enn í gangi.
Starfshópurinn skal kynna stjórnvöldum og heildarsamtökum á vinnumarkaði heildstæða lausn á viðfangsefnum sínum og tillögur að aðgerðum eigi síðar en 30. apríl nk.
Starfshópinn skipa:
- Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, formaður, án tilnefningar
- Gísli Gíslason, formaður, án tilnefningar
- Henný Hinz, f.h. forsætisráðherra
- Ingilín Kristmannsdóttir, f.h. innviðaráðherra
- Ólafur Heiðar Helgason, f.h. fjármála- og efnahagsráðherra
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, f.h. félags- og vinnumarkaðsráðherra
- Regína Ásvaldsdóttir, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Fannar Jónasson, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Eyjólfur Árni Rafnsson, f.h. Samtaka atvinnulífsins
- Bjarni Þór Sigurðsson, f.h. Alþýðusambands Íslands
- Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, f.h. BSRB, BHM og KÍ