Hoppa yfir valmynd
21. október 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 116/2024 Úrskurður 21. október 2024

Mál nr. 116/2024                  Eiginnafn:     Mateo (kk.)

Hinn 21. október 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 116/2024 en erindið barst nefndinni 18. október 2024.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Mateo (kk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú miðað við að sérhljóðið í lok nafnsins sé borið fram -ó en nafnið Mateó er á mannanafnaskrá. Íslensk karlmannsnöfn enda almennt ekki á -o. Þess vegna er aðeins unnt að fallast á ritháttinn Mateo að hann teljist hafa unnið sér hefð.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera ellefu einstaklingar nafnið Mateo í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sá elsti fæddur 2007. Nafnið kemur þó ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920 og uppfyllir því strangt til tekið ekki skilyrði 1. gr. reglnanna. Eiginnafnið Mateo er af erlendum uppruna, sama nafn og biblíunafnið Mattheus/Matthías, en rithátturinn Maeto tíðkast í mörgum löndum spænskumælandi löndum. Nafnið Mateó getur ekki talist rótgrókið þar sem það var fært á mannanafnaskrá árið 2018 og nafnberar eru mjög fáir. Þá eru fleiri í þjóðskrá sem bera nafnið Mateo en Mateó. Miðað við að rithátturinn Matheo hefur verið samþykktur, sbr. úrskurður mannanafnanefndar í máli nr. 13/2022, telur nefndin ekki annað hægt en að telja skilyrði 4. gr. reglnanna uppfyllt og samþykkja nafnið.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mateo (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Mateó.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta