Hoppa yfir valmynd
30. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland tók þátt í mannúðaraðgerðum á Haítí

Ljósmyndir: UNOCHA - mynd

Ísland tók þátt í mannúðaraðgerðum á vegum Sameinuðu þjóðanna á Haíti í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir vesturhluta landsins um miðjan ágústmánuð. Upptök skjálftans urðu um 160 km vestur af höfuðborginni Port-au-Prince og hann mældist 7,2 stig á Richter.

Ólafur Loftsson fór á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og utanríkisráðuneytisins til Haíti. Þar starfaði hann fyrir Miðstöð Sameinuðu þjóðanna fyrir hamfaramat (United Nations Disaster Assessment Center, UNDAC) frá 25. ágúst fram í miðjan september. „Það var sérstök tilfinning að koma aftur hingað eftir jarðskjálftann 2010. Dagarnir voru langir og við vorum stanslaust að vinna í greiningu á því hvaða hjálpargögn vantaði og leiða saman aðila til að koma þeim eins skjótt til þeirra sem á þurftu að halda. Það er líka ljóst að það mun taka langan tíma fyrir þetta fátæka land að rétta úr kútnum og að áfram verði kallað eftir virkum stuðningi alþjóðasamfélagsins,“ segir Ólafur.

UNDAC hafði það hlutverk að aðstoða stjórnvöld við að framkvæma mat á aðstæðum og samhæfa neyðaraðgerðir á vettvangi. Teymi UNDAC var staðsett á þremur stöðum á Haíti, í Port au Prince, Les Cayes og í Jeremie, en gífurleg eyðilegging varð á innviðum landsins, eins og skólum, sjúkrahúsum, vatnsveitum og samgöngumannvirkjum.

„Þetta hefur verið mjög lærdómsríkur tími og það var mikil reynsla og ánægja að vinna með öllu þessu góða fólki,“ segir Ólafur.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta