Sérfræðingur á fjármálaskrifstofu
Laust er til umsóknar starf sérfræðings á fjármálaskrifstofu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
Megin verkefni eru fjárlagagerð og eftirlit með rekstri stofnana ráðuneytisins, auk annarra verkefna.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða aðra sambærilega menntun, auk starfsreynslu á því sviði. Áhersla er lögð á færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð. Laun greiðast samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofustjóri í síma: 545 8700.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík fyrir 4. september nk.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Reykjavík, 12. ágúst 2004