Fríverslunarsamningur Íslands og Kína í gildi 1. júlí
Lagalegri málsmeðferð fríverslunarsamnings Íslands og Kína hefur nú verið lokið og mun samningurinn muni taka gildi 1. júlí næstkomandi.
„Það er afar ánægjulegt að geta nú í sumar rekið smiðshöggið á þennan mikilvæga samning sem ég vona að verði íslenskum útflutningsaðilum mikil lyftistöng,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra um samninginn sem felur í sér afnám tolla á öllum helstu útflutningsvörum Íslands.
„Mikil tækifæri liggja í þessum samningi og höfum við orðið vör við gríðarlegan áhuga íslenskra og kínverskra fyrirtækja á að efna til nýrra samstarfsverkefna. Hér sannast enn á ný hve vel Íslendingar standa vel að vígi til að sækja á ný mið og nýta þá möguleika sem felast í hnattvæðingunni,“ segir utanríkisráðherra af þessu tilefni.
Með þessum mikilvæga áfanga verður Ísland fyrsta Evrópuríkið sem hrindir fríverslunarsamningi við Kína í framkvæmd og gæti samningurinn veitt íslenskum fyrirtækjum umtalsvert forskot á hinum ört vaxandi Kínamarkaði. Í tilefni af gildistöku samningsins mun Gunnar Bragi heimsækja Kína í lok júnímánaðar og leiða viðskiptasendinefnd sem skipulögð er á vegum Íslandsstofu.
Af sama tilefni verður nýtt húsnæði fyrir sendiráð Íslands formlega opnað en á síðasta ári buðu eistnesk stjórnvöld Íslendingum að samnýta nýja sendiráðsbyggingu þeirra í Beijing.