Sjálfbær leiðangursferðamennska á norðurslóðum; Hvað, hvers vegna og hvernig?
Hin árlega Norðurslóðahátíð, Arktisk Festival fer fram á Norðurbryggju dagana 5. - 6. nóvember n.k.
Að því tilefni mun Gyða Guðmundsdóttir fyrir hönd AECO halda fyrirlestur um sjálfbæra leiðangursferðamennsku á norðurslóðum.
AECO (Association of Arctic Expedition Cruise Operators) eru samtök sem samanstanda af leiðangursskipafyrirtækjum sem sigla á norðurslóðum.
Í þessum fyrirlestri mun Gyða Guðmundsdóttir, Community Engagement Specialist hjá AECO segja frá viðleitni samtakanna til að tryggja að félögin leggi sitt af mörkum til þeirra byggðarlaga sem þau heimsækja á fjölbreyttan hátt - t.a. m. með samstarfi við menntastofnanir á svæðunum, umhverfishreinsunum meðfram strandlengjunni og viðskiptum með vörur og matvæli svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrirlesturinn fer fram í anddyri sendiráðs Íslands sunnudaginn 6. nóvember kl 12:00 - 12:45