Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Styrkur til mannúðaraðstoðar í norðurhluta Eþíópíu

Ung móðir í búðum í Ayder í Tigrayfylki. Ljósmynd: HK - mynd

Hjálparstarf kirkjunnar hlaut á dögunum 20 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til mannúðaraðstoðar í Amhara fylki sem er nágranna fylki Tigray í norðurhluta Eþíópíu. „Í kjölfar átaka sem geisað hafa í landinu er ljóst að þörfin fyrir mannúðaraðstoð hefur sjaldan verið meiri, einkum lífsbjargandi aðgerðir sem tryggja fólki aðgang að vatni, fæðu og lífsviðurværi,“ segir Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkunnar.

Hann segir að mikil eyðilegging hafi orðið á innviðum samfélagsins, skólum, heilsustofnunum og vatnskerfum. „Við komum til með að nýta styrkinn til verkefna í samvinnu við Lúterska heimssambandið sem er samstarfsaðili Hjálparstarfs kirkjunnar á vettvangi. Verkefnið mun ná til um 20 þúsund manna,“ segir hann.

Átök hafa sem kunnugt er geisað í nyrstu fylkjum Eþíópíu í rúmt ár. Að mati Sameinuðu þjóðanna hangir líf 5,5 milljóna íbúa á bláþræði vegna matarskorts. Tugþúsundir íbúa hafa flúið yfir til Súdan og átökin hafa breiðst út til fylkjanna Amhara og Afar þar sem 450 þúsund íbúar eru á hrakhólum.

„Markmiðið er að fólk sem þurft hefur að yfirgefa heimili sín vegna ófriðarins og býr við óöruggar aðstæður og líður skort á helstu nauðsynjum fái fæðu, hreint vatn og aðgang að hreinlætisaðstöðu og geti verið öruggt þar sem það er og snúið heim þegar aðstæður lagast,“ segir Bjarni.

„Fólk sem þurft hefur að flýja vopnuð átök í Tigray býr við skelfilegar aðstæður, þessi góði stuðningur íslenskra yfirvalda gerir kleift að bjarga mörgum mannslífum,“ segir Sophie Gebreyes framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins í Eþíópíu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta