Hoppa yfir valmynd
3. september 2020

Kynntu sér viðskipta- og fjárfestingartækifæri í Harbin

Rafræn ráðstefna um viðskiptatækifæri í Harbin-borg. - mynd

William Freyr Huntingdon-Williams,, staðgengill sendiherra, og Pétur Yang, viðskiptafulltrúi sendiráðsins, sóttu fyrr í dag rafræna ráðstefnu um viðskipta- og fjárfestingatækifæri á svæði Harbin-borgar í norður Kína (2020 Harbin Online Investment Promotion to Europe).

Á ráðstefnunni var m.a. farið yfir þau tækifæri sem bjóðast í Harbin og reynslu evrópskra viðskiptaaðila á svæðinu. Þá voru áætlanir yfirvalda á svæðinu varðandi uppbyggingu atvinnulífs næstu árin kynnt. Ráðstefnan var haldin á vegum borgarstjóra Harbin og utanríkismálaskrifstofu borgarinnar.

Íslensk fyrirtæki stunda nú þegar viðskipti í nágrenni Harbin sem er efnahags- og stjórnsýslumiðstöð Heilongjiang héraðs í norður Kína og telur rúmlega tíu milljónir íbúa. Í janúar á þessu ári funduðu fulltrúar sendiráðsins með fulltrúum borgarstjórnar og utanríkismálaskrifstofu Harbin á árlegu viðskiptaþingi, auk þess sem íslenskum fyrirtækjum bauðst að kynna sér viðskipta- og fjárfestingatækifæri á svæðinu og funda með atvinnulífi borgarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta