Breyting á lögum um einnota drykkjarvöruumbúðir
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.
Með frumvarpinu er ætlunin að fylgja eftir hluta þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshóps um drykkjavöruumbúðir frá júlí 2018, auk þess sem lagðar eru til nauðsynlegar breytingar á skilagjaldi og umsýsluþóknun. Meðal tillagna er að markmiðsákvæði sé bætt við lögin, að skilakerfið nái til fleiri aðila en verið hefur og heimild ráðherra til að setja ákvæði um söfnunarmarkmið og stærð umbúða í reglugerð.
Athugasemdir við frumvarpsdrögin þurfa að berast eigi síðar en 3. október nk.