Talið að 132 milljónir manna hafi þörf fyrir mannúðaraðstoð á næsta ári
Einn af hverjum sjötíu íbúum jarðarinnar býr við kreppu. Átök koma við sögu í flestum tilvikum og krepputíminn hefur lengst á síðustu árum. Á næsta ári er reiknað með að 132 milljónir manna víðs vegar um heiminn þurfi á mannúðaraðstoð að halda. Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar áforma að veita 93,6 milljónum þeirra sem verst eru staddir mat, skjól, heilsugæslu, menntun, vernd og annan lífsnauðsynlegan stuðning. Þetta kemur fram í skýrslu Skrifstofu samræmingar fyrir mannúðarmál (OCHA) sem kynnt var í Genf í morgun.
Talið er að fjárþörfin til þess að mæta mannúðaraðstoðinni á næsta ári komi til með að nema um 22 milljörðum bandarískra dala, en greining á þörfinni vegna Sýrlands hefur ekki enn verið birt og því er talið líklegt að hækka megi fyrrnefnda fjárhæð um þrjá milljaðra dala.
Í skýrslu OCHA kemur fram að tímabil kreppu þar sem þörf er á samhæfðri mannúðaraðstoð á vegum Sameinuðu þjóðanna sé komið í níu ár, en var liðlega fimm ár 2014. Á þessu ári hafa tæplega tveir af hverjum þremur sem notið hafa mannúðaraðstoðar verið íbúar þjóða þar sem slík aðstoð hefur verið veitt í sjö ár eða lengur.
„Kerfi mannúðarmála er í dag skilvirkari en nokkru sinni fyrr," segir Mark Lowcock framkvæmdastjóri OCHA. „Við skilgreinum betur en áður sértækar þarfir og veikleika mismunandi hópa og bregðumst fyrr við þegar hörmungar verða."
Á þessu ári hafa fleiri en áður verið á hrakhólum vegna átaka. Á þremur árum hefur þeim sem neyðast til að yfirgefa heimili sín fjölgað úr 59,5 milljónum í 68,5 milljónir. Á síðustu tveimur árum hefur þeim sem búa við matarskort fjölgað úr 80 milljónum í 124 milljónir.
Í þessu höfuðriti OCHA – Global Humanitarian Overview – koma fram upplýsingar um helstu ástæður mannúðaraðstoðar í heiminum en auk vopnaðara átaka snerta náttúruhamfarir og afleiðingar loftslagsbreytinga um 350 milljónir manna árlega að ógleymdu gífurlegu eignatjóni.