Hoppa yfir valmynd
18. desember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 773/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 18. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 773/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090142

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. september 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. ágúst 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins. Samkvæmt kæru var ákvörðun móttekin samdægurs, 2. ágúst 2023.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, en í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins móttók kærandi ákvörðun í málinu 2. ágúst 2023. Kærandi kærði ákvörðunina 28. september 2023. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til 17. ágúst 2023, var liðinn þegar kæran barst. 

Greinargerð kæranda er dagsett 17. ágúst 2023 og kveðst kærandi í tölvubréfi til kærunefndar hafa lagt fram kæru á vefsíðu nefndarinnar en ekki fengið meldingu um móttöku og því lagt fram kæru með tölvubréfi, dags. 28. september 2023. Með tölvubréfi til kæranda, dags. 11. desember 2023, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan frests og var honum veittur frestur til 14. desember 2023 til þess að leggja fram skýringar. Kærandi hefur ekki lagt fram frekari gögn eða skýringar vegna málsins.

I.       Niðurstaða

Samkvæmt gögnum málsins var ákvörðun kæranda móttekin 2. ágúst 2023. Í kæru ber kærandi fyrir sig að hafa lagt fram kæru á vefsíðu stofnunarinnar 17. ágúst 2023 en ekki fengið staðfestingu um móttöku kæru. Meint kæra var ekki móttekin af kærunefnd. Þar að auki bendir kærunefnd á þær upplýsingar sem fram koma á kæruformi á vefsíðu nefndarinnar að berist ekki staðfesting innan 30 mínútna er kærendum ráðlagt að setja sig í samband við nefndina. Í ljósi framangreinds er ekki fallist á með kæranda að ákvörðun hafi verið kærð 17. ágúst 2023. Lagt er til grundvallar að kæra hafi verið móttekin af kærunefnd 28. september 2023.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt. Ekki liggja fyrir gögn sem sýna fram á að kærandi hafi raunverulega lagt fram kæru 17. ágúst 2023. Þá liggja fyrir upplýsingar á vefsíðu nefndarinnar þar sem fram kemur að berist staðfesting ekki innan 30 mínútna skulu kærendur hafa samband við nefndina og verður kærandi að bera hallann af því. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki beri að taka kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Í því skyni lítur nefndin sérstaklega til þess að niðurstaða hinnar kærðu ákvörðunar mælir fyrir um óbreytta réttarstöðu kæranda en auk þess getur kærandi lagt fram nýja umsókn um vegabréfsáritun án mikillar fyrirhafnar og tilkostnaðar.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.


 

Úrskurðarorð:

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The applicant’s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta