Forseti Íslands hefur fallist á tillögu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur dómsmálaráðherra um að Eiríkur Jónsson, prófessor, verði skipaður dómari við Landsrétt frá og með 1. september n.k. en dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti mat Eirík hæfastan til að gegna embættinu. Aðrir umsækjendur um embættið voru: Ásmundur Helgason, Ástráður Haraldsson, Guðmundur Sigurðsson, Jón Höskuldsson og Jónas Jóhannsson.Efnisorð