Rekstraraðilar sem reka félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk sæki um starfsleyfi fyrir 27. maí
Félög, félagasamtök, sjálfseignarstofnanir og aðrir þjónustu- og rekstraraðilar sem veita eða hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eða samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, þurfa að afla starfsleyfis félagsmálaráðuneytisins. Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar sér um útgáfu starfsleyfanna.
Fjallað er um skilyrði starfsleyfa í reglugerð um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra þjónustu- og rekstraraðila sem veita þjónustu við fatlað fólk og í reglugerð um starfsleyfi til félaga, félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra einkaaðila sem veita félagsþjónustu.
Rekstraraðilum sem eru að hefja starfsemi er skylt að sækja um starfsleyfi áður en þjónusta hefst. Þeim rekstraraðilum sem voru í rekstri í október síðastliðnum þegar fyrrnefnd lög tóku gildi ber hins vegar að sækja um starfsleyfi innan sex mánaða frá gildistöku reglugerðar um starfsleyfi, eða fyrir lok maí 2019. Sótt er um starfsleyfi rafrænt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar í gegnum netfangið [email protected] og á vefsvæði stofnunarinnar gef.is.