Hoppa yfir valmynd
22. maí 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fitch Ratings staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs en breytir horfum í neikvæðar

Fitch Ratings hefur breytt horfum fyrir lánshæfismat ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs var staðfest og er því óbreytt.

Endurmat á horfum úr stöðugum í neikvæðar endurspeglar veikari hagvaxtarhorfur, áhrif kórónufaraldursins á fjármál hins opinbera og hættu á að áhrif veirunnar á efnahagslíf reynist enn meiri en nú er vænst. Matsfyrirtækið telur Ísland útsett fyrir áhrifum faraldursins og að útlit sé fyrir skarpan efnahagssamdrátt, versnandi afkomu hins opinbera og markverða hækkun skulda.

Staða Íslands var sterk í aðdraganda Covid-19 áfallsins að mati Fitch Ratings; afgangur hefur verið af rekstri hins opinbera og skuldastaða þess orðin lág, efnahagsreikningar heimila eru sterkir og gjaldeyrisforði þjóðarbúsins stór.

Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs gætu hækkað ef væntingar styrkjast um að hagkerfið komist hjá langvinnum erfiðleikum í kjölfar áfallsins sem nú ríður yfir, t.a.m. ef dregur úr óvissu um stöðu helstu útflutningsgreina og með aukinni tiltrú á að böndum verði komið á skuldasöfnun hins opinbera til meðallangs tíma.

Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs gætu lækkað ef niðursveiflan verður alvarlegri og langvinnari en reiknað er með, ef ekki tekst að koma böndum á skuldasöfnun hins opinbera til meðallangs tíma, eða ef verulegt fjármagnsútflæði yrði sem ógnað gæti fjármálastöðugleika og dregið úr viðnámsþrótti til að bregðast við ytri áföllum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta