Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2024 Matvælaráðuneytið

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði.

Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

Þeir einstaklingar geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

  • Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
  • Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
  • Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
  • Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning.
  • Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:

  • Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
  • Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
    5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð land¬búnaðarins.
  • Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
  • Afrit af reikningum fyrir kaupum.
  • Afrit af leigusamningi, ef við á.

Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér forgangsreglur.

Umsóknum skal skila inn á afurð.is 

Umsóknarfrestur er til 1. september nk.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta