Hoppa yfir valmynd
15. júní 2017 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 336/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 336/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17050011

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 3. maí 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. apríl 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til meginreglu laga nr. 80/2016 um útlendinga sem birtist í 1. mgr. 36. gr. laganna, sbr. einnig 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. febrúar 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 6. mars 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 21. mars 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 12. apríl 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 3. maí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 16. maí 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann vilji ekki snúa aftur til Þýskalands því að þaðan verði hann endursendur til [...]. Hann hafi verið í Þýskalandi í um þrjá mánuði og fengið mat og húsnæði en ekki notið lögfræðiþjónustu. Maturinn hafi ekki verið góður og stundum hafi verið kalt inni á herbergjum þar sem loftræstingin hafi sífellt verið að bila. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og ákveðið að kæra ekki þá ákvörðun því þá þyrfti hann að greiða fyrir lögfræðiþjónustu og fengi lengra endurkomubann. Enn fremur hafi kærandi ekki fundið fyrir öryggi í flóttamannabúðunum í Þýskalandi. Um málsatvik að öðru leyti vísar kærandi til gagna málsins.

Til stuðnings aðalkröfu kæranda segir í greinargerð að rétt sé að undirstrika að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði aðeins á um heimild stjórnvalda til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, en ekki skyldu, sbr. skýrt orðalag hinna nýju laga um að taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar nema tilgreindir stafliðir eigi við. Meginregla laganna sé því að allar umsóknir skuli teknar til efnismeðferðar nema að undantekningarreglur laganna eigi við og í samræmi við almennar lögskýringarreglur skuli túlka undantekningarreglur þröngt. Samkvæmt gögnum málsins virðist sem fella megi mál kæranda undir c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en kærandi telji það ótækt og byggi á því að taka eigi mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Í slíkum tilvikum beri stjórnvöldum skylda til að taka umsókn til efnismeðferðar, líkt og orðalag ákvæðisins gefi til kynna. Í því sambandi vísar kærandi til athugasemda með frumvarpi til breytingarlaga nr. 115/2010 við þágildandi lög nr. 96/2002 um útlendinga, þ.e. um sérstakar ástæður, svo og athugasemda við 36. gr. með frumvarpi til núgildandi laga nr. 80/2016 um útlendinga. Í síðarnefnda frumvarpinu sé m.a. vísað til viðkvæmrar stöðu og heilsufars einstaklinga og sýni sú viðbót vilja löggjafans til að víkka út gildissvið 2. mgr. 36. gr. laganna miðað við beitingu stjórnvalda á sambærilegu ákvæði í eldri lögum. Sé það enda í samræmi við meginreglu nýju laganna um að allar umsóknir um alþjóðlega vernd skuli teknar til efnismeðferðar.

Þá er í greinargerð kæranda að finna umfjöllun um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Af umsóknum um alþjóðlega vernd sem skráðar hafi verið í aðildarríkjum Evrópusambandsins á síðasta ársfjórðungi ársins 2016 hafi langflestar verið skráðar í Þýskalandi, eða 77.200 talsins. Árið 2015 hafi ríkjum Evrópusambandsins borist um 1,2 milljónir umsókna og hafi Þýskaland tekið við meira en þriðjungi þess fjölda. Vegna álags á hæliskerfinu í Þýskalandi hafi þýsk stjórnvöld komið á sérstakri flýtimeðferð sem mannréttindasamtök Amnesty International telji að tryggi ekki réttláta málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Þá hafi þýsk yfirvöld jafnframt meinað fjölmörgum umsækjendum inngöngu í landið með því að snúa þeim við á landamærum sínum, jafnvel undir þeim formerkjum að um Dyflinnarmál sé að ræða. Margar móttökumiðstöðvar í Þýskalandi séu afar fjölmennar og enn aðrar yfirfullar, skortur sé á fjárveitingum til að veita viðhlítandi og mannúðlega þjónustu og engar samræmdar reglur gildi um aðbúnað í móttökumiðstöðvum. Þá njóti umsækjendur takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar en frjáls félagasamtök veiti ókeypis lögfræðiaðstoð aðeins á tilteknum svæðum og viðtöl fari oft fram án lögfræðings. Hægt sé að sækja um gjafsókn á dómstigi en veiting gjafsóknar velti gjarnan á því hversu líklegt dómstóllinn telji að fallist verði á umsókn um alþjóðlega vernd. Því ráðleggi sumir lögmenn umbjóðendum sínum að sækja ekki um gjafsókn því þeir óttist að neikvæð niðurstaða í gjafsóknarmáli geti leitt til neikvæðrar niðurstöðu þegar komi að umsókn um vernd.

Þá vísar kærandi í harða gagnrýni tólf frjálsra félagasamtaka á þýska hæliskerfið sem fram komi í nýjustu skýrslu Asylum Information Database (AIDA) um Þýskaland. Enn fremur hafi þýsk stjórnvöld gripið til ýmissa takmarkana á réttindum flóttamanna á síðasta ári. Þá hafi andúð, ógnanir og ofbeldi gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd verið vandamál, árásir á heimili umsækjenda hafi aukist og hægri öfgahópar hafi fengið byr undir báða vængi, þ.á m. á vettvangi stjórnmála. Rannsóknir sýni að fordómar gagnvart útlendingum hafi aukist samhliða auknum fjölda flóttafólks og umsækjenda um vernd. Í ljósi þessa verði íslensk stjórnvöld að hafa í huga ákall Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá mars 2015 og leitast við að létta álagi af ríkjum á borð við Þýskaland, þar sem ásóknin sé mest.

Í greinargerð kæranda segir að í úrskurði Útlendingastofnunar sé m.a. byggt á því að ekkert bendi til þess að um kerfisbundinn galla sé að ræða á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Í dómaframkvæmd dómstóls Evrópusambandsins hafi hugtakið kerfisbundinn galli verið sett inn sem viðbótarskilyrði en stjórnvöld í mörgum aðildarríkjum hafi byggt á því að slíkur galli þurfi að vera til staðar svo unnt sé að beita fullveldisreglu Dyflinnarreglugerðarinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu geri þó ekki kröfu um kerfisbundinn galla með sama hætti. Til stuðnings þessu sjónarmiði vísar kærandi til niðurstöðu dómstóls Evrópusambandsins í máli C.K. o.fl. gegn Slóveníu (mál nr. C-578/16 PPU) frá 16. febrúar 2017. Samkvæmt dómnum gangi það gegn 4. gr. mannréttindaskrár Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, að líta eingöngu til kerfisbundins galla við endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þau lönd sem hyggi á endursendingar þurfi fyrst og fremst að líta til hættunnar á ómannlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá hafi hæstiréttur Bretlands komist að þeirri niðurstöðu árið 2014 að ekki sé þörf á því að sanna að um kerfisbundinn galla sé að ræða í hæliskerfi viðtökuríkis, á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, svo að unnt sé að koma í veg fyrir endursendingu. Þetta fái enn frekari stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 sem hafi verið unnin í tengslum við endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi óttist að hann muni sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Þýskalandi verði hann sendur aftur þangað, ekki síst vegna álags á þýska hæliskerfinu og lágs hlutfalls verndarveitinga sem einkenni mál [...] umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi.

Til stuðnings varakröfu sinni, um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka málið til meðferðar að nýju, vísar kærandi til þess að ákvörðun stofnunarinnar sé ekki studd nægum gögnum. Í hinni kærðu ákvörðun vísi Útlendingastofnun til örfárra heimilda sem séu nú úreltar. Þá sé ákvörðun stofnunarinnar aðeins röð staðhæfinga án nokkurs raunverulegs rökstuðnings. Með tilliti til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, svo og 22. gr. sömu laga, um efni rökstuðnings, verði að gera þá kröfu að Útlendingastofnun vísi ítarlega til heimilda máli sínu til stuðnings. Þá geti skortur á heimildum ekki talist nægur grundvöllur fyrir svo íþyngjandi ákvörðun sem um ræði í tilviki kæranda. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki uppfyllt skyldur sínar skv. 10. gr. stjórnsýslulaga og megi í því sambandi benda á bréf umboðsmanns Alþingis til forstjóra Útlendingastofnunar frá 5. ágúst 2016. Rannsóknarregla stjórnsýslulaga sé öryggisregla og leiði brot á henni alla jafna til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar. Verði ekki fallist á aðalkröfu byggi kærandi á því að svo gróflega hafi verið brotið gegn fyrrgreindri reglu að ekki komi annað til greina en að ógilda ákvörðunina. Þá vilji kærandi jafnframt benda á skyldu Útlendingastofnunar til að tryggja að einstaklingsbundin greining fari fram á heilsufarsástandi umsækjanda um alþjóðlega vernd, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að beiðni um endurviðtöku hafi ekki verið svarað innan tilskilinna tímamarka.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017);

· Amnesty International Report 2016/17 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2017);

  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017);

· Freedom in the world 2016 – Germany (Freedom House, 11. mars 2016) og

  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

[...] er á lista þýskra stjórnvalda yfir örugg upprunaríki (e. safe country of origin). Mál umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru ríkisborgarar öruggra upprunaríkja kunna að sæta flýtimeðferð í Þýskalandi. Í flýtimeðferð felst að málsmeðferðin má einungis taka sjö daga og umsækjendur dvelja í sérstökum móttökumiðstöðvum. Hafi umsækjandi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt innan sjö daga hlýtur málið hefðbundna málsmeðferð. Reglur varðandi einstaklingsviðtöl, kærurétt og lögfræðiaðstoð eru áþekkar þeim sem gilda um hefðbundna málsmeðferð.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þó hafi þýsk yfirvöld sætt gagnrýni frjálsra félagasamtaka vegna yfirfullra móttökumiðstöðva og búsetuúrræða einkum á árunum 2014 og 2015 en vegna þess hve verulega hafi dregið úr umsóknum á árinu 2016 hafi ástandið batnað til muna.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsóknir eru metnar og þær samþykktar séu þær ekki álitnar bersýnilega tilhæfulausar.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þá bendir ekkert til þess að [...] umsækjendum um alþjóðlega vernd sé sjálfkrafa synjað um hæli í Þýskalandi heldur séu umsóknir þeirra metnar á einstaklingsgrundvelli.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist um öryggi sitt í flóttamannabúðum í Þýskalandi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um Þýskaland má ráða að telji kærandi sig vera í hættu eða öryggi hans ógnað þar í landi þá geti hann leitað aðstoðar þýskra lögregluyfirvalda.

Kærandi er ungur, einstæður karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. mars 2017 kvaðst kærandi vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Þá gefa önnur gögn málsins ekki annað til kynna. Því er það mat kærunefndar að ekkert bendi til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar í greinargerð sinni til nýlegs dóms Evrópudómstólsins í máli C.K. og fleiri gegn Slóveníu (nr. C-578/16) frá 16. febrúar 2017. Það er mat kærunefndar að niðurstaða áðurnefnds dóms feli m.a. í sér að flutningur umsækjanda um alþjóðlega vernd geti í tilteknum tilvikum falið í sér hættu á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, í skilningi 4. gr. mannréttindaskrár Evrópusambandsins og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, einkum og sér í lagi þegar um sé að ræða umsækjanda sem glími við mjög alvarleg andleg eða líkamleg veikindi. Þá sé það flutningurinn sjálfur sem geti falið í sér ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð, burtséð frá aðstæðum í móttökuríki. Í dóminum er lögð áhersla á að lagt sé mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd í hverju máli. Ekki verður talið að framangreindur dómur hafi þýðingu í tengslum við mál kæranda. Kærunefnd, sem og Útlendingastofnun, hefur lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður kæranda séu slíkar að flutningur hans til Þýskalands geti falið í sér ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Hann hefur, eins og áður segir, greint frá því að hann sé heilsuhraustur. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í áðurnefndu viðtali hjá Útlendingastofnun ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. febrúar 2017.

Líkt og áður segir gerir kærandi athugasemdir við rannsókn og rökstuðning Útlendingastofnunar í máli hans, sbr. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur rannsókn stofnunarinnar á aðstæðum í móttökuríkinu, Þýskalandi, hvorki studda nægilegum né uppfærðum gögnum þar um. Þá minnir kærandi á skyldu stofnunarinnar til að tryggja að einstaklingsbundin greining fari fram á heilsufarsástandi umsækjanda, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem nauðsynleg eru svo að mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Við ákvörðunartöku í máli kæranda hjá Útlendingastofnun byggði stofnunin niðurstöðu sína á gögnum sem aflað var við meðferð málsins, gögnum sem kærandi lagði fram og gögnum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í móttökuríkinu, Þýskalandi. Fallast verður á það með kæranda að Útlendingastofnun beri að fjalla um móttökuríki í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd með hliðsjón af nýjustu tiltæku skýrslum þar um. Aftur á móti er það afstaða kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um aðstæður í Þýskalandi, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við meðferð málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Þá kemur fram í tölvubréfi frá Útlendingastofnun, dags. 6. júní 2017, að kærandi hafi gengist undir skyldubundna læknisskoðun við komu til landsins, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Enn fremur er í ákvörðun Útlendingastofnunar tekin afstaða til þess hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Með hliðsjón af framangreindum vitnisburði kæranda og fyrirliggjandi læknisvottorði verður ekki talið að þörf hafi verið á frekari rannsókn á heilsufari kæranda af hálfu Útlendingastofnunar. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt mat kærunefndar að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé gerð grein fyrir þeim meginsjónarmiðum sem ráðandi voru við mat á því hvort rétt væri að synja kæranda um efnismeðferð og helstu málsatvikum sem höfðu verulega þýðingu við úrlausn málsins, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Telur kærunefnd því ekki tilefni til að gera athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar í málinu. Varakröfu kæranda um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju er því hafnað.

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Tryggvadóttir Erna Kristín Blöndal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta