Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2009 Innviðaráðuneytið

Tillögur um verkefnastofn um flugöryggi til umsagnar

Stýrihópur um verkefnastofn um flugöryggi - flugöryggisáætlun 2009 til 2012 hefur skilað tillögum sínum til samgönguráðherra sem skipaði hópinn á síðasta ári. Tillögurnar eru nú til umsagnar og er unnt að skila umsögnum til 1. mars næstkomandi.

Verkefnastofn er röð afmarkaðra innbyrðis tengdra verkefna, sett fram með heildstæðum hætti, með það sameiginlega markmið að auka öryggi í flugsamgöngum. Ráðgert er að verkefnastofnin, eða valdar tillögur, nýtist við gerð samgönguáætlunar eins og öryggisáætlanir vegna umferðar og siglinga. Um er að ræða alls sextíu og sjö verkefni sem stýrihópurinn lagði fram í fimm hlutum:

1. Viðvarandi innleiðing alþjóðlegra staðla, krafna og löggjafar EB á sviði flugmála.

2. Viðvarandi innleiðing bestu starfshátta ("best practices")

3. Viðvarandi eftirlit með öryggi

4. Virk rannsókn atvika og slysa

5. Efling flugöryggis - sérstök rannsóknarverkefni og miðlun upplýsinga um flugöryggismál.

Ráðuneytið óskar eftir að fá umsagni í síðasta lagi fyrir 1. mars næstkomandi á netfangið [email protected].



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta