Stefna heilbrigðisráðherra
Blönduð fjármögnun, svigrúm til fjölbreytilegra rekstrarforma, útboð og þjónustusamningar. Þetta eru lykilatriðin í stefnulýsingu heilbrigðisráðherra. Stefnulýsing ráðherra hvílir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem mælir fyrir um að kostnaðargreina skuli heilbrigðisþjónustuna og taka upp blandaða fjármögnun á heilbrigðisstofnunum þar sem fjármagn fylgi sjúklingum. Þannig eiga heilbrigðisstofnanir að fá fé í samræmi við þörf og fjölda verka. Þá verður skapað svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum, en jafnframt tryggt að allir hafi að henni jafnan aðgang, óháð efnahag. Í stefnulýsingu heilbrigðisráðherra eru settar fram róttækar breytingar á skipulagskerfi heilbrigðisþjónustunnar, en í stuttu máli er gert ráð fyrir skipulagi sem byggjast mun á fjórum meginstoðum sem starfa undir yfirstjórn heilbrigðisráðuneytisins.
Breytt skipulag fjármögnunar heilbrigðisþjónustu og hlutverk sjúkratrygginga
Samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustuna og taka upp blandaða fjármögnun á heilbrigðisstofnunum þar sem fjármagn fylgi sjúklingum. Þannig fái heilbrigðisstofnanir fjármagn í samræmi við þörf og fjölda verka. Skapað verði svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum, en jafnframt tryggt að allir hafi að henni jafnan aðgang, óháð efnahag.
- Markmið breytinganna
- Skipulag heilbrigðiskerfisins
- Hlutverk heilbrigðisráðuneytis
- Skipulag fjármögnunar
- Kerfisbreyting og notkun hugtaka
- Samningavæðing þjónustunnar
- Eftirlit
- Stefnumótun og samningar byggðir á staðgóðri þekkingu
- Spurt og svarað