Ráðstefna um byggðamál, alþjóðavæðingu og samvinnu
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 19/2001
Byggðastofnun og iðnaðarráðuneytið efna til ráðstefnu þriðjudaginn 30. október 2001 undir heitinu: Byggðamál, alþjóðavæðing og samvinna. Ráðstefnan verður haldin í Eldborg, móttökuhúsi Hitaveitu Suðurnesja hf. í Svartsengi og hefst kl. 13:30.
Að loknu ávarpi iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, munu eftirfarandi flytja erindi:
- Lindsay McFarlane, sérfræðingur byggðaþróunarsviðs OECD,
- Niels Bjerring Hansen, sérfræðingur Interreg áætlunar ESB,
- Steen Illeborg, framkvæmdastjóri Svæðaskrifstofu ESB,
- Donald MacInnes, framkvæmdastjóri Skosku svæðaskrifstofunnar í Brussel,
- Arve Cato Skjerpen, skrifstofustjóri Evrópuverkefna í Noregi,
- Baldur Pétursson, fulltrúi iðnaðarráðuneytisins við sendiðráðið í Brussel,
- Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi,
- Elísabet Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunarstofu Austurlands.
Þá mun Theodór Bjarnason, forstjóri Byggðastofnunar, flytja lokaorð.
Á ráðstefnunni verður fjallað um þróun byggðamála á tímum alþjóðavæðingar og aukinnar samvinnu milli landa og svæða. Ráðstefnan er öllum opin og gert er ráð fyrir að henni ljúki um kl. 18:00.
Iðnaðarráðuneytið,
29. október 2001.
29. október 2001.